Allt ađ ske!!
28. febrúar 2007 klukkan 21:54
Jæja elskurnar loksins fáið þið einhverjar smá fréttir af mér.
Síðan síðast er mikið búið að gerast, byrjum á jólageðveikinni í vinnunni sem var ekkert smá, bara vinna út í eitt í des. svo komu loksins jólin!! Jólin okkar voru yndisleg í alla staði, við fengum að hafa Jón Grétar rosalega mikið og fórum í fullt af jólaboðum og borðuðum alveg yfir okkur! Sem sagt þá vorum við stór fjölskylda um jólin, vorðum reyndar bara 3 á aðfangadag og höfðum það sko bara kósý. Svo komu áramótin og þau voru líka alveg frábær, við buðum mömmu og pabba, tengdó, Hörpu systir Gaua og familíunni hennar til okkar, elduðum ljúffengan kalkún með öllu tilheyrandi, sprengdum fullt, fórum á brennu, horfðum á skaupið og spiluðum langt fram eftir með kokteila og fínerí og þá slógust í hópinn Inga Dóra vinkona og Tommi kallinn hennar;)
Svo erum við bara búin að hafa það best það sem af er nýju ári. Ég fékk heldur betur óvæntan glaðning 16.janúar......þá áttum við Gaui smá sambandsafmæli og ákváðum að skella okkur út að borða, hvað haldiði að yndislegasta manni í heimi hafi dottið í hug að gera??? Já, hann mætti með trúlofunarhringa og var ekkert smá rómó þessi elska, en já við erum sem sagt trúlofuð....en ekki fara að búast við brúðkaupi strax....það er ekki á dagskrá, allavega ekki næstu 3 árin ca. ;)
Svo fengum við líka þá flugu í höfuðið að flytja til Reykjavíkur þar sem þessi millikeyrsla er frekar fúl....Gaui að fara snemma á morgnana og koma heim um átta á kvöldin, svo við drifum okkur bara í að finna húsnæði, ég sagði upp vinnunni sem var reyndar mjög erfitt en ég ætlaði alltaf í bæinn aftur svo þetta var alltaf bakvið eyrað. Svo nú erum við flutt í bæinn, komin efst í seljahverfið til að byrja með, stefnum svo á að kaupa í Kópavoginum eftir ca. 2 ár. En við lilli erum reyndar enn að keyra á milli því við klárum ekki leikskólann og vinnuna á Selfossi fyrr en í lok mars. En það er bara ágætt, erum allavega komin í bæinn og ég er í skýjunum yfir að vera komin úr sveitinni í menningunaaftur!!!! ;) ;)
En þetta er það helsta frá okkur í bili....nú er bara um að gera að fara að kíkja á okkur....ekki nærri eins langt að fara! ;) Adios.....bæjó!

Jóna Guđrún Kristinsdóttir